Wednesday, 28 January 2009

Lang síðan seinast

Þar sem ég hef ekkert sent frá mér á nýju ári ákvað ég að gera ráðabót á því. Var á gangi um eina af byggingum heimspekideildar þegar ég rakst á ansi hreint skemmtilegt skífurit. Skífuritið hafði einhver ágætur kennari í enskum og amerískum fræðum sett á hurðina á sér. Skífuritið hef ég endurgert og birti hér að neðan.




Thursday, 4 December 2008

oh.. djö.. vonbrigði

Allt frá því í október hef ég horft með löngunaraugum á jóladagatölin í Tesco. Sérstaklega hugsaði ég mér gott til glóðarinnar að geta í desember vaknað við þá tilhlökkun að í jóladagatalinu mínu biði eftir mér gómsætur Mars moli að japla á með morgunkaffinu. Að vísu hefði Snickers moli verið betri en það er víst ekki á allt kosið í þessum heimi. 

Þegar ég opnaði fyrsta gluggan á mánudaginn varð ég þó fyrir miklum vonbrigðum. Í staðinn fyrir karamellu og núggat sælu var aðeins að finna hálf bragðlaust mjólkursúkkulaði. Í einfeldni minni hélt ég að hér væru aðeins um tæknileg mistök að ræða en nú þegar opnaðir hafa verið fjórir gluggar og ekki svo mikið sem vottur af karamellu og núggati fer ég að halda að ég hafi verið blekktur all hrapalega. Þetta mars jóladagatal er þá ekkert góðgæti heldur aðeins andstyggileg vanhlegun á viðkvæmum tilfinningum manna. Ég er þó enn bjartsýnn og bind sterkar vonir um að uppreisn æru leynist á bakvið glugga númer 24.

Wednesday, 5 November 2008

Andleysi

Sökum andleysis þá held ég að láti meistara Dylan um þennan pistil. 

Talkin' John Burch paranoid blues:

Well I investigated all the books in the library,
ninety percent of 'em gotta be burned anyway.
I investigated all the people I knowed,
ninty percent of them gotta go.
The other two percent are fellow Birchers... just like me.

Well, I finally started thinking straight.
When I ran out of things to envestigate.
Couldn't imagine doing anything else,
so now I'm sitting at home investigating myself
Hope I don't find out too much... good god!

Tuesday, 14 October 2008

Nýjan Seðlabankastjóra

Rétt í þessu var mér að berast skemmtileg bón skruddufésinu (facebook). Mér var boðið að gerast miðlimur í samtökum sem berjast fyrir því að gera Guðmund Ólafsson, hagfræðing, að nýjum seðlabankastjóra. Ég hef af þessu tilefni í hyggju að starta nýjum samtökum sem munu berjast fyrir því að gera Guðmund Ólafsson, fornleifafræðing, að nýjum seðlabankastjóra.

Monday, 13 October 2008

I'd rather have a bowl of credit crunch!

Fór í mína fyrstu ferðina með UMHC (University of Manchester Hiking Club) í gær. Ferðinni var heitið til Yorkshire Dales sem er í um tveggja tíma fjarlægð með rútu. Það var æðislegt að komast burt úr borginni og í sveitasæluna í Yorkshire. Næstu helgi munum við svo fara á þrjá tinda í norður Wales sem verður örugglega ekki slæmt. Að sjálfsögðu er göngunum alltaf slúttað á pöbbnum svo maður komi nú ekki skorpnaður til baka. 


Það var aðeins eitt sem skemmdi fyrir mér þessa annars prýðisgöngu á sunnudaginn. Laugardagskvöldið. Ég ásamt nokkrum félögum mínum ákváðum að prófa að fara á 5th Avenue sem á víst að vera einn heitasta staðurinn niðri í bæ. Ekki nóg með að maður þurfi að borga 4 pund til að komast inn þá þurfa þeir sem ætla út að reykja að punga út heilu  pundi í viðbót fyrir að verða brennimerktir með borða sem gefur viðkomandi kost á að fara allt að 4 sinnum út af staðnum til að reykja. 


Með því var þó arðráninu hvergi nær lokið. Þegar inn var komið fékk maður náðarsamlegast að láta af hendi heil 3 önnur pund fyrir flösku af bjór. Allt þetta fjárútlát var þó ekki það versta. Þegar inn var komið þá var fyrirboði sá sem við urðum vitni að í röðinni að veruleika. Ég og hópurinn sem ég var með, fólk sem er allt í framhaldsnámi, vorum lang, lang, lang elsta fólkið á staðnum. Eldri en aðrir skemmtistaðagestir, eldri en barþjónarnir, eldri en dyraverðirnir og einnig eldri en hysteríska konan sem reyndi sem mest hún mátti að reyna að ná fljólubláum ælupolli upp úr teppinu í stiganum. Það hefði nú mátt vara mann við.

Wednesday, 1 October 2008

Af óætum mati, enskum

Langaði að deila með ykkur atviki sem átti sér stað þegar ég kom fyrst til Manchester fyrir u.þ.b tveim vikum síðan. Ég var fyrstu helgina á hóteli í miðborg Manchester. Vélin frá Íslandi lenti á flugvellinum um 8 leytið og því var ég ekki kominn á hótelið fyrr en um hálf tíu. Þar sem ég nennti ekki að ráfa um miðborg Manchester í leit að einhverju ætu ákvað ég að láta bara senda upp á herbergi hamborgara og bjór. Þessi hamborgari var einhver sá mesti viðbjóður sem ég hef á allri minni ævi bragðað. Kjötið var einhverskonar kjötbúðingur sem var búið var að sjóða ofurlitla stund í svona eins og fötu af olíu. Beikonið sem var ofan á kjötbúðingnum hafði einnig verið sett í sömu fötuna. Þannig að ég borðaði hamborgarabrauðið, þó aðeins neðri helminginn því sá efri var orðinn gegnsær af fitu, og franskarnar á meðan ég sat á hótelherberginu og starði niður á næsta götuhorn þar sem veitingastaðurinn eastzeast en þessi ágæti veitingastaður var víst valinn besti indverski veitingastaðurinn í Manchester árið 2005 og besti veitingastaðurinn árið 2006. Mér fannst lífið ósanngjarnt.

Wednesday, 24 September 2008

Ungverjinn rís úr öskustónni

Ég ætlaði í fyrstu ekkert að vera að blogga á meðan ég væri hérna úti en eftir nokkrar ábendingar frá gömlum félögum sem höfðu þessa síðu í blogghringnum sínum hef ég nú ákveðið að vekja ungverjann aftur frá dauðum. Þetta verður því í fimmta skiptið sem ungverjinn rís úr öskustónni. Vil ég af þessu tilefni benda á að Jesús nokkur Kristur reis aðeins einu sinni upp frá dauðum. Ég ætla þó ekki að fara að gorta því vinninginn á enn sem komið er hvítur Izuzu Rodeo sem hefur risið svo oft upp frá dauðum að ekki einu sinni Fönix sjálfur nær að slá hann út. 


Er annars með þessa línu á heilanum:


O the time will come up
When the winds will stop
And the breeze will cease to be breathin'
Like the stillness in the wind
Before the hurricane begins
The hour that the ship comes in


Ef einhver þarna úti hefur enn ekki meðtekið guðdómleika The bootleg series með Dylan vil ég eindregið benda viðkomadi á að ráða bót á því hið snarasta.